gudmundaJune 7th 1985 (Age 26) Female 801 selfoss.. Geirakotið góða
|
|
|
 |
|
Wednesday, January 25, 2006
Þetta er opinber tilkynning að ég sé hætt að blogga. Ég nenni því ekki
lengur, ágæt tvö ár af bloggi að baki. Maður byrjar svo bara aftur
þegar maður flytur til útlanda einhverntíman á næstu árum. En ég held
nú áfram að bulla á http://blog.central.is/donnie. Tékkið svo á pistlunum mínum í Sunnlenska :) Góðar stundir, Guðmunda Þóra
Posted at 25.1.06 by gudmunda
Permalink
Sunday, January 22, 2006
Þorrinn er gegnin í garð. Ég ætla ekki á þorrablót en nú í kvöld er lítið þorrablót í Geirakoti, umm get ekki beðið að borða hangikjöt (það er það eina sem ég borða, er ekki mikið fyrir þorramat) Það er tómur miskilningur að allir sem búa í sveit borða þorramat með bestu list. Þorramatur er vondur og það vita það allir, þetta er bara eitthvert íslenskt stolt í fólki að troða þessu ofan í sig. Forfeðrum okkar fannst þetta heldur ekkert gott, þetta var bara það sem þeir þurftu að borða í þeirri sáru fátækt sem íslendingar bjuggu við. Skrítið að halda í einhvern mat sem fólk borðaði með tárin í augunum í harðæri, fátækt, barnamissi, plágum, sauðafellum og angandi af skítalykt og iðandi af lús. Skál, njótið þorrans kæru landsmenn.
Posted at 22.1.06 by gudmunda
Permalink
Tuesday, January 17, 2006
Maður er mættur aftur í marmarahöllina eftir helgina og flúorljósin og
gelgjurnar í minipilsunum gera líf mitt svo fullkomið. Helgin var lituð
af áfengisdrykkju og sköndulum en það er nú ekkert nýtt. Í spá minni um
árið 2006 sem þórhildur gerði segir að í byrjun árs mun ég gera skandal
og svo verðum feb. til maí rólegir mánuðir hjá mér.. thank god!!!! Svo
verður sumarið æðislegt og ég mun svífa um á bleiku ástarskýi og stunda
mikið kynlíf... já götuhornið verður vinnustaður minn greinilega :)
Ég horfði á fyrri hluta af breskum dramaþætti í
tveimur hlutum í gærkveldi (mamma fékk að stjórna fjarstýringunni) og
þvílíkt dramalíf sem fráskildar einstæðar mæður geta lifað.. eða meira
svona ÞAÐ ER GREINILEGA HÆGT AÐ GERA SJÓNVARPSÞÁTT UM ALLT.. lélegasta
sjónvarpsefni hingað til. Hverjum er ekki sama hvort einhver kelling
hefur ekki stundað kynlíf í fjögur ár og að fyrrverandi maðurinn hennar
sé fáviti sem braut niður sjálfstraust hennar og vil hafa hana í
vasanum allt sitt líf. Já en ég ætla samt ekki að missa af seinni
hlutanum því að nýju maðurinn í lífi hennar er MJÖÖG myndarlegur hehehe
Ég hætti lífi mínu í gærkveldi til að fara að kaupa
nammi handa mér og fjölskyldu minni og festi bílinn og skautaði þessa
stuttu leið í Olís.. það er kominn svo mikill snjór að göturnar
innanbæjar voru næstum ófærar og hvað þá hlaðinu heima, loksins fáum
við almennilegan vetur. Jæja er að fara í uppeldisfræði að læra að skemma ekki börn.. eigið góða viku. GÞ
Posted at 17.1.06 by gudmunda
Permalink
Saturday, January 14, 2006
Posted at 14.1.06 by gudmunda
Permalink
Thursday, January 12, 2006
Það hefur nú ekki farið
framhjá neinum það rosalega mál um DV og umfjöllun þeirra um meintan
barnanauðgara frá Ísafirði. Maðurinn stytti sér aldur í fyrradag og
tildrög þess talin vera vegna þessarar opinberunar mannsins í
Dagblaðinu. Það er þó ekki hægt að kenna einum né neinum um það þegar
manneskja ákveður að binda enda á líf sitt, það er í öllum tilvikum
ákvörðun tekin af manneskjunni sjálfri þegar allar aðrar leiðir virðast
lokaðar. Að taka sitt eigið líf er auðveldasta leiðin út og er að mörgu
leyti mjög eigingjarn verknaður en þó er ekki hægt að sakast við fólk
sem vill ekki lifa lengur.
DV hefur stundað þessa svokölluðu
"sannleiksblaðamennsku" í rúm tvö ár og það hlaut að koma að því að
þjóðinni fannst mælirinn fullur. Það sem mér finnst einkennilegast við
þetta er að það þurfti dauðsfall til að umræðan komst almennilega í
gang. Manni ofbýður mjög oft að sjá forsíðu DV og þau mál sem tekin eru
fyrir eru oftar en ekki mjög viðkvæm og alls ekki á rökum reist.
Almenningur hefur lært að trúa ekki öllu sem það les í DV en það fólk
sem verður fyrir slíkri opinberun í fjölmiðlum á sér ekki viðreisnar
von sem manneskja lengi á eftir hvort sem að umfjöllunin hafi
verið sönn eða ekki.
Hver ber ábyrgðina? Það er sagt að ritstjórar,
eigendur og blaðamenn blaðsins beri ábyrgð á þessu skítlega eðli. Það
er satt en það sem mér finnst hafa gleymst að nefna erum við sjálf,
Íslenska þjóðin. Blaðið selst vel og svona blaðamennska virðist slá í
gegn hjá lesendum, við sækjumst eftir að lesa um erfiðleika annara og
viðkvæm málefni sem er í raun ekkert athugavert við nema hvað að við
verðum að láta eitthversstaðar mörkin. Auðvitað er jákvætt að DV fjalli
um það sem er rangt í samfélaginu og fylgji málum eftir en það er hægt
að gera það á löglegan og mannúðlegan hátt.Við búum í frjálsu samfélagi
og það kann að virðast vera frelsi að fjalla svona um fólk en það sem
Pétur Blöndal sagði í útvarpinu nú í morgun er vert að minnast:"Okkar frelsi endar þar sem frelsi hinna byrjar",
eða eitthvað í þá áttina. Þeir sem að kaupa DV eru að ýta undir frekari
úthúðun á fólki og lesa sig fulla af órökstuddum gróusögum og
uppskálduðum sora um fólk í okkar eigin samfélagi sem þurfa að bera
þennan dóm alla sína ævi. Vonandi mun þessi umræða ekki ýta undir sölu
blaðsins enn frekar því núna hugsa ritsjórar blaðsins eflaust að slæm
umfjöllun sé bertri en engin umfjöllun.
Farmerinn kveður
Posted at 12.1.06 by gudmunda
Permalink
Monday, January 09, 2006
Það er fátt skemmtilegra en að rekast á alvöru borgarbörn hérna í "sveitinni". Undantekningalaust eru þessi borgarbörn með hæðnislegt glott á vörum og fara að öllu með gát, rétt eins og þau gætu smitast af sveitamennskunni. Reka oft nefið aðeins upp í loftið í leit að fjósalykt svo þau geti nú skellt almennilega upp úr. Fjósalykt, hestalykt, súrheyslykt, fjárhúslykt, skítalykt, já bara alla sveitalega lykt kalla þau fjósalykt og hafa fundið hana áður!!.. já í húsdýragarðinum!!!!
Ég rakst á nokkra félaga úr Reykjavík um daginn á Pakkhúsinu. Þeir voru í sumarbústað í nágrenninu og voru komnir með ógeð á hvor öðrum svo þeir höfðu ákveðið að skella sér í "þorpið". Ég sá þessa ókunnugu menn sitja við eitt borð út í horni hálf vandræðalegir svo ég gef mig á tal við þá. Jú jú kurteisir herramenn, drukku Carslberg og lyktuðu vel. Eftir stuttar samræður vissi ég að þeir voru hreinrætaðir reykvíkingar. Voru í HR í lögfræði, áttu íbúð í Hlíðunum og konur sem annaðhvot áttu tískuvöruverslun eða unnu á sólbaðstofum. Loksins kom spurningin sem ég hafði beðið eftir: "Hvað gerið þið eiginlega hérna, er eitthvað að gera, eða?" Strákurinn leit í kringum sig með hneykslissvip á fólkið sem gargaði ofan í hvort annað, dansandi með bert á milli og strákanna sem voru afaskræmdir í framan af munntóbaki. Ég tjáði þeim það að við lifðum bara okkar lífi einsog annað fólk, færum í skólann eða vinnuna, elduðum kvöldmat, horfðum á sjónvarp, færum á kaffihús, í bíó, í heimsóknir til vina, á pöbbinn, á ball, tónleika, út að borða; við værum nú með þrjá veitingastaði á heimsklassa við ströndina, í leikhús, á sýningar, panta pizzu, horfa á video og það sem við vildum gera hverju sinni. Það kom löng þögn, svo spurði ég þá með bros á vör, en hvað gerið þið eiginlega í Reykjavík? Er ekki svo mikið um að vera að þið megið bara ekki vera að því að mæta í skólann? Síminn bjargaði þeim:" Já blessssaður, nei við erum í bústaðnum í Grímsnesi, kíktum aðeins til Selfossar... já skítapleis maður, angar allt af fjósalykt og stelpan á barnum kann ekki að gera Oliver." Þeir hurfu út um dyrnar og ég sat ein eftir. "Á Selfoss segir maður, ekki til Selfossar!" Öskra ég á eftir þeim og fer á barinn. "Einn Stokkseyring takk:"
Posted at 9.1.06 by gudmunda
Permalink
Saturday, January 07, 2006
Jæja.. hverjir ætla að kjósa Eyþór Arnalds í vor??? kommon komið smá umræðu í gang.
Posted at 7.1.06 by gudmunda
Permalink
Tuesday, January 03, 2006
Ég er ennþá að jafna mig eftir áramótagleðina en þessi yndislega þynnka er nú bara alveg þess virði bara. Ég skemmti mér mjög vel, sjaldan hlegið svona mikið.. enda var karókíkeppnin á pakkaranum á nýársdag mjög skrautleg. Tek það nú fram að ég hafði vit á því að syngja ekki.. enda vita þeir sem þekkja mig að ég er ekki þekkt fyrir góða söngrödd !!!
Skólinn að byrja á föstudaginn og ég sá það inn á INNU að stundataflan er komin og ég fékk bara einhverjar 17 einingar inn þannig að ég þarf aldeilis að tuða í henni Ásu Nönnu á föstudaginn til að geta útskrifast í vor æ hvað það verður gaman.
En hvað er málið? Ég steig á vigtina áðan og jólin hafa nú leikið mig grátt í þetta skiptið.. maður þarf að taka á því í hinni æðislegu heilsuræktarstöð Styrk á nýjan leik.. enda er ég á þeim aldri að líkamsstarfsemin fer að hægja á sér og enn erfiðara verður að ná af sér hverju grammi.. hvað margar klst. í ræktinni til að ná konfektinu sem ég var að borða af mér? Já eins og sagt er; One second on the lip.. forever on the hip.. eða eitthvað í þá áttina.. ég ætti kannski bara að fara að vinna í því að missa bílprófið aftur til að missa kílóin með kraftgöngu á hverjum morgni í skólann... nei ég gleymdi mér.. það mun ekki gerast aftur, er nefninlega komin með sambönd innan sýsluskrifstofunnar!!!! (smá einkahúmor í gangi)
En ég er að fara í atvinnuleit, þar sem Hafið Bláa er búið að loka fram á vor.. ef þið vitið um einhver laus störf á Selfossi og nágrenni, látið mig vita.. en munið, ég geri ekki hvað sem er. Til dæmis tek ég ekki að mér að vera húshjálp hjá Geira Sím eða eitthvað svoleiðis .. þó hann sé nú besti vinur minn.. hahaha
Jæja nóg af þessu bulli, er í svefngalsa dauðans.. hvar er Valgerður þá til að hlæja með mér??
Ohh looord bless the people who read this.. AAAAmen
Posted at 3.1.06 by gudmunda
Permalink
Saturday, December 31, 2005
Gliðilegt nýtt ár folks!!!!!!
Posted at 31.12.05 by gudmunda
Permalink
Wednesday, December 28, 2005
Jólin eru að verða búin. Ég er mjög fegin, vil hefja nýtt ár núna strax með nýjum áherslum og breyttu lífedni. Ég ætla ekki að láta neinn stjórna mér eða koma illa fram við mig og ég ætla að vera algjört nörd sem lærir öll kvöld og vera aldrei við karlmann kennd.
punktur
Posted at 28.12.05 by gudmunda
Permalink
|
|
|